Stella

Sandshoe hairy crutch!

20.11.2007 19:50:42 / stella

..........

Jæja.. blogg..

ég bloggaði fínustu færslu um daginn en svo datt hún út og ég nennti ekki að skrifa hana aftur, hehe.. þannig að wordið verður notað núna.Ég átti nú afmæli í október og fékk marga fína pakka og þar á meðal RYK kjól frá Geir mínum, sem var ekkert smá flottur :D

Ég er ekki búin að fara heim á eyrina í 2 vikur sem er langur tími fyrir mig..hehe, þannig að ég get varla beðið eftir föstudeginum, er að fara á jólahlaðborð á laugardag en svo verður bara chill og lært því prófin eru að byrja á mánudag... SJÆT!! En það á bara vonandi eftir að ganga ágætlega.

Um síðustu helgi var girlsnight á föstudag þar sem ég og Ragnheiður mín fórum og fengum okkur að borða og svo í bíó, ekkert smá gaman því ég hef ekki séð hana svo lengi og má ekki gleyma góðu tjatti sem var greinilega alveg komin tími á.. :D svo á laugardagskvöldið var mér boðið í mat til stínu, nonna og Daða míns sem var alveg frábært :D

Svo er bara beðið eftir jólafríinu, er alveg að komast í jólagírinn...... víha.....  

En later .....

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 15:03:10 / stella

........!!!!

 

Enn ein frábær helgi að baki.. Ákvað að taka mér langa helgi og fór heim á fimmtudag og suður aftur á mánudegi, gott að geta verið heima í nokkra daga með elskunni minni :D
Við vorum nú bara í rólegheitum á fimmtudaginn.. Á föstudaginn átti kellan svo tíma í neglur sem aðalmaðurinn var búin að græja.. Ég á nottlega BARA besta kærasta í heimi.. hehe.. :) Svo grilluðum við heima í lækjó með Trausta og Þorra frænda, enda bara snilldar kokkar hér á ferð.. hehe :) Ég og Geir fórum svo á Dátann þar sem Eisi og félagar voru að trúbba sem varð úr óvænt djamm, sem var massa gaman :D

Á laugardaginn var svo innflutnings(síðbúið;)/afmælispartí þar sem vinnuliðið hans Geirs mætti og við skemmtum okkur alveg konunglega.. Það var græjuð bolla, og svo fleiri góðar veitingar og þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt kvöld :D


stemmari... :D


innlifun í söngnum ... :D flottir .. :D

Á sunnudaginn (í gær) átti svo kallinn afmæli og þá var smá afmælisveisla, kaffi og kökur a la Þórdís, ekkert smá gott.. hehe :) 

En núna er það bara að læra og læra... 


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 22:02:27 / stella

Allt að gerast!!

Ætli það sé nú ekki kominn tími á smá blogg. :D

Sumarið var mjög fínt, var að vinna sem flokkstjóri í Glerárskóla og svo í Átaki. Ég skemmti mér frábærlega með liðinu sem var að vinna með mér, Rakel, Kristbjörg, Birna og Árni.. svo nottlega krakkarnir auðvitað. En svo er maður bara komin til Kef aftur og skólinn tekinn við, sem er reyndar bara fínt.. :D

Við fórum nokkur úr skólanum og hann Geir minn í bústað um þar síðustu helgi og ég ætla að láta nokkrar myndir fylgja með því hérna á eftir..

Annars vil ég óska Rannveigu og Vilberg til hamingju með erfingjann :*

þangað til næst....


Lýður, ég og Krissi


Lýður, Inga og Aldís


Það var klárlega gítarstemning :)


Svabbi og Lýður

enda þetta á okkur skötuhjúum, en það var fleira eðal fólk í ferðinni og fleiri myndir koma seinna.. takk fyrir mjög skemmtilega helgi allir saman ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 23:33:52 / stella

Bloggidí blogg

Ekki er nú mikið að frétta frekar en fyrri daginn.. hmm..

En ég vil byrja á því að óska Tinnu og Hjörvari innilega til hamingju með litlu prinsessuna.. hún er nottlega ekkert smá sæt... hlakka til að sjá ykkur sæta fjölskylda :*

Það er allt að klárast í skólanum, er að skila síðasta verkefninu á morgun og svo taka prófin við eftir tæpa viku, ekkert lítið stress í gangi á þessum bænum allavega..

Annars hafði maður það gott í páskafríinu heima hjá gömlu og rosa gaman að hitta alla á akureyrinni..

Sverige tekur svo við eftir prófin, sem verður snilld, get ekki beðið eftir því að fara þangað.

Vá hvað ég hef nákvæmlega EKKERT að segja..

En ég blogga einhvern tímann þegar ég hef eitthvað mikilvægara að segja.. yfir og út.. hehe

8)


» 18 hafa sagt sína skoðun

01.04.2007 12:11:22 / stella

Páskafrí!!

Þá er maður komin heim á Akureyrina góður í páskafrí.. sem er nottlega bara snelld :):) Í gær fermdist Ólafur bróðir og vá hvað drengurinn fékk mikinn pening.. sjæse.. Maturinn var geðveikt góður, mamma og ömmur mínar eru nottlega bara snilldar kokkar :):)

Svo þarf nú reyndar að læra slatta í páskafríinu, gera verkefni og fara að búa sig undir prófin  sem eru að koma. En þar sem við erum bara að fara í þrjú próf ætti þetta að reddast fínt, eða það vonar maður allavega..

Svo er maður bara svoltið góður með sig og búin að panta sér flugfar til Sverige eftir próf, förum út 17 mai, sem er nottlega bara snilld. Ég, Solla og Þórður ætlum að fara og kíkja á nýjasta fjölskyldumeðliminn og svo kannski slæst afi með í för. :lol: Svo kíki ég á Lindu mína í Skaufa sem verður snilld, ath hvort hún geti nú ekki sýnt manni lífið þarna.. hehe :)

Svo verður geggjað að hitta stelpurnar mínar hérna á Eikey, Lindu buffið mitt kemur heim í dag og Freyjudraumurinn minn líka, en hún fór á vopnó um helgina.. Svo nottlega Rangó,Tinna beibí og knúsa litlu Máney :):) En Thelma mín er nú farin til Florida og hefur það vonandi sem allra best :* love you guys :*


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 23:22:08 / stella

Nautalundir!! mmm...

Helgin var bara very good... Á föstudaginn fórum við í Veggsport í skvass og vá hvað það er snilldaríþrótt, ótrúlega skemmtilegt..

Ég verslaði aðeins um helgina, sem mér finnst nú ekki leiðinlegt, hitti svo stelpurnar frá Akureyri, þ.á.m. Freyju mína, sem ég hef ekki séð svo lengi. Svo var kíkt aðeins út.. Hjálpaði líka Sollu að undirbúa árshátíð.. Við aníta tókum svo líka létt flipp.. hehe..

Pabbi Anítu gaf henni enga smá Nautalund, hef ekki séð annað eins flikki, og ég held satt að segja að ég ætti bara að fara að læra kokkinn, kem sjálfri mér stöðugt á óvart í eldamennskunni, allavega þá borðuðum við nautalundir í kvöldmat og okkur tókst bara snilldarlega til að græja þær og var geðveikt gott ... mmmm....

En ég ætla að enda þetta á nokkrum myndum síðan um helgina...


Ég og Aníta beibí..


And again...


Freyja bestust mín :* í stuðinu...


stelpurnar í gírnum...


Massa teiti.. hehe.... ;)

Takk fyrir mig allir.. og endilega munið að kvitta allir saman ;)


» 13 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 20:49:18 / stella

Hæ hó!!

Helgin var bara algjör snilld..

Helgin hjá mér byrjaði á fimmtudaginn, þar sem ég var í fríi í skólanum á föstudaginn. Ég fór í bæinn á fimmtudaginn í skólann og hitti svo Ragnheiði mína sem var snilld því við höfum ekki hist svo lengi. Svo var ég bara með familíunni. Á föstudaginn fór ég með múttu og patta í IKEA sem var ekki slæm ferð því þau gáfu mér húsgögn, sem var algjör snill og geggjað flott.. Ég á nottlega BARA bestu foreldra í heimi :):)

Á föstudagskvöldið var svo íþróttadagur við laugarvatn, þar sem við töpuðum með stæl.. haha... en þar sem var mjög slöpp mæting hjá okkur var það ekki furða, en vonandi að við getum veitt þeim harðari keppni næst :):) En eftir íþróttirnar þá var tekið á því og sötrað mjöðinn góða, svo var farið á hápunktinn og djammað frammeftir..

Á laugardaginn fór ég svo aftur í bæinn og fór með Thelmu, Tinnu og Máney Lind á Fridays, sem var snilld, maður er ekki búin að sjá þær svo lengi.. Ég og Thelma brösuðum svo aðeins og svo fórum við til Sigurjóns og kíktum svo niðrí bæ, vorum ekki komnar heim fyrr en um 4 leytið og við vorum edrú, sem mér þykir góð ending :) hehe..

Á sunnduaginn fórum við Thelma mín bara að spóka okkur í kringlunni.. En það var ekkert keypt sem var fínt.. hehe :)

Takk bara fyrir glæsilega helgi alle sammen :D

Svo kemur Freyju draumurinn minn um næstu helgi og ég get ekki beðið eftir að sjá hana :):)

En yfir og út í bili.. cao :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 23:58:23 / stella

Enn ein helgi afstaðin!!

Þá er enn ein helgi afstaðin...  ég var í bænum um helgina, hitti bróa minn á fimmtudagskvöldið,  sem var snilld að vanda.. Fór svo á Hressó á föstudagskvöldið að sjá Eisa hennar Fjólu minnar og Gotta að spila, rosa gaman... Alltaf gaman að hitta Fjóluna mína. Laugardagurinn var svo mjög góður.. :D Hitti yndislegt fólk og rosa gaman... Fór til Sollu frænku og horfði aðeins á júróvisjón undankeppnina og kíkti svo til Ingu sætu, fór svo bara heim í bólið :D

Í dag fór ég svo til Kef city í hádeginu til að fara að vinna, eignast smá penge..

Var svo að tala við Freyju mína og vá hvað ég sakna hennar nú mikið!! :( langar mest að fara bara heim á akureyrina mína.. En það verður komið sumar áður en maður veit af.. Veit reyndar ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki stelpurnar mínar hérna í kef.. en ætla að segja þetta gott í bili..

Enda þetta á myndum af mér og freyju minni á tjúttinu 8 feb..


ég og ástarhnoðrinn minn :*


Bestustu vinkonurnar :*


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 19:06:23 / stella

Akureyri!!

Það er bara þannig að Akureyrin er lang best :) ég hafði það alveg ótrúlega gott heima hjá mömmu og pabba.. Hitti svo stelpurnar sem var alveg frábært :haha: maður saknar þeirra alveg rosalega mikið .. Svo var frábært að sjá litlu Máney rúsínubollu :D Það var sleepover hjá freyju minni sem var snilld að vanda :) Við kíktum svo út á lífið á laugardagskvöldið og það var rosa gaman þegar við hittumst heima, ég, freyja, sonja og Helga. :) En svo varð ég reyndar fyrir miklum vonbrigðum með bæinn því það var bara hreinlega ekkert gaman :S en þetta er svona.. Ég æfði svo með Thelmu minni í Átaki og það er orðið alveg ótrúlega flott :)

Takk fyrir geggjaða helgi allir ;) Miss you alveg helling..


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 01:33:34 / stella

Erum við að tala um bloggara ársins.. hehe..

Ef það væru gefin verðlaun fyrir að vera versti bloggari myndi ég eflaust fá þau verðlaun.. held að það sé hreinlega ekki spurning.

Er að fara á morgun með skólanum í world class í kynningu og svo í einhvern tíma, sem verður vonandi ógó gaman..

Ókei, eitt sem ég verð að koma á framfæri er að Channing Tatum (gaurinn í step up) er fríkin heitur.. Maður heldur bara varla slefi sko.. mmmm.... nammi namm.. hehe....

Um helgina verður svo partí hjá yndislega bekknum mínum, hlakka mikið til, maður hitar upp yfir landsleiknum :) athugar hvort maður muni hvernig mjöðurinn góði er á bragðið.. hehe :)

Ekki er ég sátt við úrslit leiksins í dag allavega.. dómararnir voru ekki að gera góða hluti og því miður hefur maður nú séð strákana gera betur, en engu að síður eru þeir búnir að standa sig vel, hélt reyndar á tímabili að pólverjarnir ætluðu bara að jarða þá miðað við djöfulsins brussuganginn í þeim... En vonandi taka strákarnir á því um helgina :) KOMA SVO ÍSLAND!!!!

En ætla að láta þetta duga í bili.. get ekki beðið eftir því að fara heim á akureyri.. allavega planað slumber partí hjá mér og freyju draumnum mínum, sem er alltaf hreinasta snilld.. hlakka til að sjá þig elskan :*

Stellan kveður í bili.. 8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 16:31:21 / stella

!!!!

Af hverju í ósköpunum er maður að hafa áhyggjur af einhverju sem hefur ekki orðið eða mun að öllum líkindum reddast... Af hverju fær maður þessa tilfinningu.. Mér finnst þetta leiðinleg tilfinning, sem er samt stundum til staðar.. En þá reyndar hugsa ég oft um það sem mamma segir "ekki búa til fjöllin fyrr en þau koma" sem er alveg satt, maður á ekkert að hafa áhyggjur fyrr en maður virkilega getur ekki annað... hehe þannig að maður verður bara að vera bjartsýnn og trúa því að allt gangi vel hjá manni!!!

 En já annars er ég að fara heim í heiðardalinn á morgun.. Ætla að reyna að komast eitthvað á bretti yfir helgina, og maður kíkir jafnvel á djammið þar sem það er eitthvað háskóladjamm heima.. Þannig að ég sé ykkur vonandi sem flest lömbin mín.. Mér finnst nú reyndar verst að freyjan mín verði ekki heima en hafðu það bara gott á vopnó með kallinum þínum elskan ;)

En hvað segiði verður eitthvað djamm á liðinu á Eikey??? koma svo gott fólk kommenta :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 23:39:40 / stella

jólauppgjör!

* Fullt af fínum jólagjöfum, takk fyrir mig :*
*Borðað góðan mat..
*Hittingur með skvízunum mínum
*Góður matur og mikið sprengt með allir familíunni og öðrum ættingjum.. Tjúttað fram á rauða nótt.. kannski örlítið ofmetið þar sem það var pakkað útúr dyrum í sjallanum, en samt alveg ágætt því Paul Oscar aðal kallinn stendur alltaf fyrir sínu.. mikil ölvun, en ekki hjá mér reyndar þrátt fyrir að hafa reynt mikið með herra tópas, mr. Mickey Finns og Tequila, mjöðinum góða og fleira.. ég ekki alveg skilja.. hmm.. :$
*Nýársdagur leið í svefni.. hehe.. en þynnkan var bara engin, sem er very good..
*Gott að vera heima í faðmi fjölskyldunnar og hitta alla vinina..
*Prófin gengu bara fínt..
*Langar á snjósleða.. Hvar er snjórinn sem átti að vera um jólin??
*Keflavík tekur svo við og skólinn á mánudag.. en það er bara gaman :haha:

Við sjáumst krílin mín ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 12:45:31 / stella

djamm á Eikey..

Jæja þá er maður komin heim í kotið til mömmu og pabba sem er BARA GOTT!! Maður bíður bara eftir því að fá inn einkunnirnar svo maður geti farið að vera rólegur.. Svo er það bara að vinna á fullu, ætla svo að taka allsvaðalega gott djamm í kvöld, sérstaklega þar sem ég er ekki búin að fagna próflokum með almennilegu djammi, það er nottlega ekki að virka að vera edrú á bekkjardjammi.. En var engu að síður gaman :) Maður er nottlega mað snilldarfólki í bekk.. :haha: Svo er Lindu buffið mitt að koma norður í dag og þá er enn meiri ástæða til að djamma.. Hlakka ógó til að sjá þig lindan mín.. :haha:

En talandi um djamm í kvöld, þá er Freyja mín í Flórída og nú vantar bara hinn helminginn af manni.. Ég hef bara varla tekið djamm  hérna á Akureyri án hennar þannig að þetta verður nú skrítið.. Ég sakna þín rosalega Freyja mín, þú ert bestust í heimi :*
Enda þetta hérna á okkur vinkonunum á leiðinni á djammið eftir nokkur glös.. hehe 8) love you ástin :*


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 22:30:04 / stella

Prófin að verða búin!!

Öss.. Vikurnar líða allavega.. Ég er að verða búin í prófum, sem betur fer því ég held að heilinn í mér ofhitni ef ég les mikið meira.. hmm ekki væri það nú gott. Helgin fer bara í góða afslöppun og jah, maður lærir svo sjálfsagt slatta á morgun og hinn og svo er þetta bara búið :D Við endum á líffærafræði og erum búin að taka 3 próf í vetur þannig að þetta ætti bara að vera upprifjun. En annars er helgin bara tekin í rólegheitum, verður bara tekið laglega á því um næstu helgi, ég ætla allavega að láta sjá mig á sálinni :D ég hef ekki djammað í ég veit ekki hvað langan tíma!!

Svo er Linda rúsínubolluelskan mín að koma heim, get ekki beðið eftir að hitta hana og við ætlum sko ekki að láta okkur vanta um næstu helgi á lífinu.. hehe.. það verður laglega tekið á því.. Hlakka ógó mikið til að sjá þig elskan :)

Svo eru jólin bara alveg að koma, ég er allavega komin í ágætisjólaskap þrátt fyrir að ég sé í prófum, sem er bara nett.. :haha: en ég ætla að segja þetta gott

Bless í bili.. :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 16:16:25 / stella

Próf!!

Prófin eru byrjuð og ég er búin með 2 próf af 5. Næsta próf er handbolti og fótbolti sem ég vonandi rúlla bara upp. Reyndar er svo heimur íþrótta jah, sem ég er frekar smeyk við, en það er bara að læra og læra þangað til að maður er búin að berja þessu inn í hausinn á sér.

Ég get svo ekki beðið eftir að komast heim 13 des. það verður GEGGJAÐ!!

Ég fór í 25 ára afmæli til sollu minnar í gær og svo fór ég til Steina G frænda Steina hennar Freyju minnar þar sem þau voru að sötra, Rakel mín var þar líka:D Svo fórum við í bæinn, kíktum á Hressó sem var bara massa gaman, ég var nú reyndar edrú, sem var bara alveg ágætt, allavega er ég mjög sátt við það í dag.. hehe... Enda er maður í prófum og svona..

Freyja mín ætlar svo að koma núna á eftir og vera hjá mér í nótt en hún fer til Florida á morgun í heimsókn til familíunnar, finnst reyndar slæmt að hún verði nú ekki heima á Ak þegar ég fer í jólafrí.. En vonandi skemmtiru þér frábærlega í Florida ástin mín :*  elska þig :*

Ég og Alda ætlum svo að fara að baka núna.. Voða myndó.. hehe :D


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7